Fanta Ísland - Reykjavík

  • Verified
    Listing
Company name
Fanta Ísland
Location
Stuðlahálsi 1, 110, Reykjavík, Iceland
View Map
Contact number
+354 525 2500
Working hours
  • Monday: 08:00 - 17:00
  • Tuesday: 08:00 - 17:00
  • Wednesday: 08:00 - 17:00
  • Thursday: 08:00 - 17:00
  • Friday: 08:00 - 17:00
  • Saturday: Closed
  • Sunday: Closed
E-mail address
Listed in categories
Location map
Company description
Coca-Cola á Íslandi er alþjóðlegt fyrirtæki sem hefur djúpar rætur í íslensku samfélagi með yfir 80 ára sögu hér á landi. Vörur okkar snerta daglegt líf meirihluta landsmanna á einn eða annan hátt nánast, enda seljum við sem nemur einum drykk á dag fyrir hvern íbúa á Íslandi að meðaltali. Í dag er fyrirtækið alhliða drykkjarvörufyrirtæki sem selur mörg af þekktustu og vinsælustu vörumerkjum í heiminum í fjölda drykkjarvöruflokka, jafnt óáfengum sem áfengum.

Starfsemi fyrirtækisins spannar mjög breitt svið; framleiðslu, inn-og útflutning, markaðssetningu, dreifingu, sölu og þjónustu. Við kappkostum að þróa vöruvalið og framleiða og flytja inn vörur sem uppfylla síbreytilegar þarfir neytenda og fyrir fjölbreytt  
Show more neyslutilefni.

Við leggjum mikla áherslu á gæðamál, sjálfbærni, umhverfisvænni framleiðsluaðferðir og umhverfisvænni umbúðir og vinnur fyrirtækið jafnt og þétt að úrbótum og þróun í þeim efnum.

Í dag starfa um 170 manns hjá Coca-Cola á Íslandi, aðallega á tveimur starfstöðvum: Við Stuðlaháls í Reykjavík og á Furuvöllum á Akureyri. Við erum lánsöm að starfa á líflegum og skemmtilegum markaði og að bjóða íslenskum neytendum, verslunum og veitingastöðum upp á mörg af þekktustu vörumerkjum í heiminum.

Viðskiptavinir okkar eru fjölbreyttir og reynum við að endurspegla þá fjölbreytni með áherslu á virka jafnréttisstefnu, áherslu á fjölbreytileika í hópi starfsfólks og með því að styðja við góð málefni hér á landi og hafa þannig jákvæð áhrif á samfélagið. Coca-Cola á Íslandi er bakhjarl nokkurra íþrótta- og sérsambanda, dyggur stuðningsaðili fjölda íþróttafélaga auk þess að vera meðal annars einn af bakhjörlum Rauða Kross Íslands, Íþróttasambands fatlaðra og Landsbjargar.

Reviews

0 Reviews
0.0
 
Write a Review
This company has no reviews. Be the first to share your experiences!

Questions & Answers

Have questions? Get answers from Fanta Ísland or Yelu Iceland users. Visitors haven’t asked any questions yet.

Verified Business

The accuracy of the company profile for Fanta Ísland is validated by the company owner, representative, or directory administrator.
Last update on
Registered with us in

Similiar Page for Your Business?
Make sure everyone can find your business online. Create your dedicated company page on Yelu Iceland - it's simply and easy!

List Your Business
BACK TO TOP